Gautaborg

Gautaborg

24.11.2007 14:57:27 / Gauti

Halló

sæl veriðið öll og blessuð gaman að vera kominn aftur hehe... en er samt að fara á morgun aftur ... og kem ekki aftur fyrr en rétt fyrir jól... jamm ég er að fara aftur út á sjó...

þeir sem ekki vita þá er ég búinn að fá mér bíl, loksins loksins loksins, fékk draumabílinn minn (eða Næstum) Honda accord 2007 model from the box...

HONDA ACCORD SEDAN EXECUTIVE

nema ekki með topplúgu... hann er fallegur ekki satt.... jamm alveg einsog ég...

en já svo er margt annað að gerast í mínu lífi heldur en bíllinn margt mikklu stærra... en ég veit ekki hvort ég meigi opnbera það á þessari síðu þó svo að margir viti hvað ég er að tala um... nú?

jamm en það er gott að fólk hafi skoðað síðuna þó ég hafi verið útá sjó... ég skal uppfæra hana alltaf þegar ég get promis, en jamm við heyrumst miss ya all...


» 2 hafa sagt sína skoðun

23.08.2007 19:55:09 / Gauti

Astrópía

Sjitt nú situr maður maður heima fyrir og vælir og vælir mömmu og pabba um pening til að fá að sjá Myndina Astrópía... Pía var feitletrað því það leikur sannkölluð Pía í þessari mynd... Ragnheiður Steinunn er ein fallegasta kona landsins og hvað gerir maður ekki fyrir fallega konu í herklæðum... Ef einhver falleg kona myndi koma með sverð og brynju myndi segja mér að sleikja gólfið myndi ég gera það...

virkilega spennandi að sjá hvð verður úr þessari mynd...


» 1 hafa sagt sína skoðun

19.08.2007 15:01:33 / Gauti

hvar er allt fólkið?

Ég var að velta því fyrir mér í gær hvort akueyringar séu alveg hættir að nenna að skemmta sér í bænum...

það eru yfirleitt aldrei neinir krakkar á Tjúttinu, einsog í gær... þá voru í kringum 20 manns í sjallanum... og ekki mikið fleiri á kaffi akureyri... það þurfti að loka Amour vegna rafmagnsleysis, Ég meina hvar er allt fólkið sem var að skemmta sér hér á Akureyri fyrir ca. ári... þá var yfirleitt í kringum 200 manns í sjallanum og 60 manns á kaffi akureyri eða í kringum það...

nú er bra sputningi hverjum er hægt að kenna um er það:

Verðið á börunum?

Lítið úrval á Skemmtikröfum?

eða er það útaf því að fólk er alveg hætt að nenna að djamma?

við hérna á akureyri höfum gott úrval á skemmtistöðum... veið erum með 6 skemmtistaði... er það kannski of mikið...

ég meina fólk sem fer í sjallann tildæmis fer yfirleitt vegna hljómsveitanna, en hversu oft vaknar fólk og spyr sig "Man ég eftir e-u lagi sem hljómsveitin spilaði"

ef fólk þarf að spyrja sig þessarar spurningar hversvegna er það þá að borga sig 2500kr. á stuðmenn þegar það getur sloppið með 500kr. á ingó og veðurguðina... er það kannski vegna þess að hann var í idolinu... hvaða máli skiptir það... hann getur alveg sungið þrátt fyrir það...

ég meina ég vill ekki borga mig mig inn fyrir meira en 1500 kall til þess að muna ekki einusinni eftir hljómsveitinni... og svo þegar maður fer á djammið þá er maður ekki að HLUSTA á tónlistina maður hreifir bra mjaðminar í takt og er ekkert að pæla í því hvaða lag er ... og ef þú ert að sleppa inn á ódýru verði getur þú keypt þér meira á barnum...

en nóg af þessu í bili sjáumst


» 1 hafa sagt sína skoðun

14.08.2007 18:09:48 / Gauti

Undirskriftir...

sæl aftur bra sólarhringur síðan ég blogaði síðast ég held að ég sé að ná þessu aftur... en núna ætla ég að vera stuttorður og byðja all vinsamlegast aum að klikka á linkinn hér fyrir neðann og taka þátt í undirskriftarlista gegn bæjarstjórninni...

http://akureyri.blog.is/blog/akureyri/

ég er búinn að skrifa, Páll óskar er búinn að skrifa og vonandi munt þú commenta líka...


» 1 hafa sagt sína skoðun

13.08.2007 18:59:30 / Gauti

ahmman

Ahmman var á röltinu upp laugarveginn þegar það gengu að honum 3 leðurklæddir menn...

en það er önnur saga... nú er ég virkilega að hugsa um að fara að reyna að redda mér hundi að öllum líkindum huskie... því þeir eru svo geggjað sætir... kannski e-rn sem getur flogið og spilað á gítar einsog þessi en það er kannski of mikið...

en svona grín kostar 138 þús yen svo ég er ekki að meika þennan penge svo...

kannski ég kaupi mér bra tyggjó það kostar bra  27,5 yen... það er ódýrt og þarfnast engrar ummönunar...

en ég ætla ekki að kaupa það strax...

en jæja ég byð að heilsa sí ja all in the aften


» 0 hafa sagt sína skoðun

30.06.2007 00:01:45 / Gauti

Braking news

Já það var að koma í ljós að vatn hefði fundist á mars...

NASA lýsti því yfir að vatn hefði fundist á mars nú í morgun... Steve hamp Forstjóri Nasa og Maria Ana Fjölmiðla fulltrúar héldu blaðamanna fund á hilton hótelinu í Alaska á fjórðatímanum í dag... Nú eru miklar líkur á því að það fari að Bygja íbúðarhús og verksmiðjur þar ytra einnig eru komin áform um fyrsta mcDonalds staðinn þetta eru merkar fréttir... hver er ekki til í að skella sér í 2 vkina ferð á mars?

 


» 6 hafa sagt sína skoðun

11.06.2007 19:52:16 / Gauti

uno cervesa po fo vor....

jæja nú er að koma að því að ég fari út... ég fer á morgun kl.14.40 í loftið... það verður geggjað að komast loksins af klakanum... oohhhh.... hvað mér hlakkar til... en amm er að fara að búa um mig góða nótt

» 0 hafa sagt sína skoðun

05.06.2007 19:19:18 / Gauti

klyppiferð

 

Það kannast eflaust margir við þessa mær... en hún var forsprakki hljómsveitarinnar blondie... það er ekki að ástæðulausu sem ég er að setja upp mynd af þessari stúlku... neibb... þannig er má með vexti að ég fór í Klyppingu... amm, ég settist í stólinn og maðurinn byrjaði að klyppa fyrst hárið vinstra meginn og svo hægra... jújú klyppingin gekk vel og ég er sáttur með hana, en svo dettur mér í hug snjallræði... ég spyr karlinn hvort hann hafi tíma til að setja í mig strípur... hann hugsar sig um og svarar svo efins "ókei".... ég var bra "Töff"... svo ég settist aftur niður í stólinn... hann byrjar að setja á mig rosalega þrönga gúmmíhettu sem minnir mest á smokk á risaeðlur (eða jón hlaupara) Og byrjar að plokka upp hárin með hekklunál... ekki sársaukalaust það nei... svo kemur hann með e-ð blátt í dollu og mér verður kvert við og spyr manninn hvort hann sé klikkaður, ætla setja bláar strípur í hausinn á mér þá segir hann " Chillaðu kallinn þetta er í goodie, þetta er ekki blár litur" svo ég ákvað að "CHILLA" og láta hann setja blátt sukk í hárið á mér þegar það var búið... tók hann upp poka og opnaði hann, svo ætlaði hann að setja hann á hausinn á mér... HA!! ég hélt nú ekki, ég ætla ekki að vera drepinn í klyppingu... svo ég leifði honum (hálftregur enn) að setja poka á hausinn á mér, en sem betur fer hætti hann á hálfri leið og batt hnút... svo dregur hann e-ð dót utan úr geymnum og setur fyrir aftan mig... það byrjar að tala og ég auðvitað uppúr stólnum grenjandi úr hræðslu þá kemur maðurinn aftur enn pirraðari en áður og segir mér að þetta sé til að flíta fyrir litnum... sem það gerði by the wey ekki því ég sat í stólnum í rúmar 40 mín váá... mér leiddist...

En já klypparar eru þá eftir allt ekki hættulegir heldur bestu skinn annað en tannlæknar sem rífa úr manni tennur og troða borum upp í mann það er gott meðan það er ekki malbikunartæki...

 en já það sem ég ætlaði að segja ykkur er að ég er kominn með ljósar strípur....

og ekki er enn kominn neinn styrkur frá glitni né tuborg kannski ég ætti að semja um greiðslur fyrst hehe....

 P.s. ég ýki söguna smá ég var ekki hræddur og hann var ekki pirraður..

ég er ekki heimskur auli


» 0 hafa sagt sína skoðun

02.06.2007 21:59:31 / Gauti

engin sponsor enn

Enn er ég sponsorslaus... en ég ætla ekki að ræða það í dag... ég er með annað á nálinni

það sem stendur mér næst í augnablikinu eru ekki málefni líðandi stundar...NEI...

Heldur var ég að heyra það fyrir þónokkru að 6 ára drengbarn náði að hengja sig í öriggisneti á trampolini... ég meina hvernig er það hægt... foreldrarnir hljóta að hafa skipulagt þetta og sett upp hengingarsnúru við trampólinið og vafið öryggisnetinu utanyfir... þá er spurningin sú... eru trampólin Safe (örugg á íslensku) er skynsamlegt að kaupa trampólin á 16.000 ÁN öryggisnets... og svo bæta 16.000 ofaná það fyrir öryggisnetið... hver fer að kaupa trampolin án öryggisnets og sjá á eftir krökkunum sínum fljúgandi útum hvippur og hvappir lendandi á bílum og þökum nágrannana með tilheyrandi háfaða... persónulega myndi ég ekki leifa mínum börnum (ef þau væru til staðar) vera að hoppa á trampolini án öryggisnets...

Ég ætla hinsvegar alls ekki að taka fyrir það að það sé gaman á trampolini... mér finnst t.d ekkert skemmtilegra en að skjóta yngri bræðrum mínum og sjá eftir þeim yfir í næstu garða...

en hinsvegar finst mér þetta verð vera um og of því öllum börnum langar í trampolin og jú unglingum flestum líka því ekkert er skemmtilegra þegar maður er kominn í glas...

hvernig væri ef hver gata eða jafnvel hverfi tækju sig saman og myndu kaupa trampolin fyrir krakkana... helst hafa öryggisnet... en ekki e-ð euro price dæmi þar sem krakkarnir hengja sig í....

en amm hérna kemur blog 2 og ekkert spons ennþá...

Lord Of The Drinks

ég bíð en og vona... ég ætla kannski að lækka mig niður í 45.000 á mán

 


» 0 hafa sagt sína skoðun

25.05.2007 22:30:32 / Gauti

Watz on´n´up???

Hæmm... Heyriðið góð pæling...

 

Er vant að finna hjá mér svo ég læt þær eiga sig...  Mér finnst flott að fyrirtæki séu farin að borga fyrir að fá að auglýsa á blogg síðum... hver væri ekki til í að fá 50.000 á viku eða Mánuði man ekki hvort... fyrir að blogga e-ja steypu á lyklaborð, Ha?!?!?!?!?... mér finnst það miður að maður þurfi að vera frægur til að þéna á e-ju svona bulli...

Ég get alveg skrifað e-n fróðleiksmola hérna sem fullt af fólki mun líka við en ekki kemur Tuborg eða Glitnir og býður mér samning um að fá að auglýsa á síðunni minni ég væri alveg til í að fá 500 kall á mán fyrir að auglýsa Tuborg... ég ætla að reyna á þetta og setja  tuborg og glitnis-merkið hér upp , og setja það á næstu 10 blogg, til að ath hvort ég fái símtal frá forstjóra þeirra með gott samningstilboð... hver veit nema ég sé næsta Ellý Ármanns... þó hún sé kannski full kvenleg til að ég geti líkst henni en hver veit... Ég þurfti að þræða saumavál um daginn fyrir 2 stelpur... ekki mikið eftir af eistunum... en hehe... amm meira af þessu aulgýsingardæmi... hér kemur Glitnismerkið...

ef maður fær ekki sponsor útá þetta þá veit ég ekki hvað?

og hér kemur Tuborg

nú eru bra 9 eftir og hver veit nema ég sé að fara á samning.. HA!?!?!

ATVINNU MAÐUR í bloggi...

það er eflaust nice... en amm er ekki með neinar góða pælingar í dag svo við sjáumst

 


» 2 hafa sagt sína skoðun

14.05.2007 13:45:29 / Gauti

...

Var að fara að blogga... en þarf að fara bæbæ

» 1 hafa sagt sína skoðun

09.05.2007 23:03:00 / Gauti

hahahahahahahahahahahahahahahaha.....

Vá ég var að lesa blogg hjá einni stelpu það er svo fyndið að ég verð að setja það hér inn hahaha... það er langt en þið verðið að lesa það....

 Ég raka venjulegast á mér lappirnar því ég er bara of nísk til að fara
reglulega í vax til að ráða við þennan frumskóg á löppunum á mér. Síðan
fór ég í Hagkaup um helgina og sá eitthvað rosalega sniðugt vax, auðvelt í
notkun, sársaukalaust og það besta að maður á að vera laus við hárin í 4-5
vikur..... og það var á tilboði! Þannig að ég skellti mér á það.

Síðan svæfði ég börnin og fór síðan inn á bað til að byrja
hreingerninguna, ætlunin var nefnilega að koma kallinum á óvart þegar hann
kæmi heim úr ferðalaginu seinna um kvöldið. Ég tók vaxið upp úr kassanum,
þetta var svona kaldir vaxrenningar sem átti að nudda á milli handanna til
að hita áður en þeir væru settir á hárugu svæðin. Ég byrjaði að nudda
renningana en sá fram á að það myndi taka alltof langan tíma og fékk því
snilldarhugmynd. Ég lagði þá bara á borðið við hliðina á vaskinum, náði í
hárblásarann, setti hann í botn og var nákvæmlega enga stund að hita þá.
Síðan setti ég þá á leggina á mér og....... þetta var.... heitt og alls.
ekki. sársaukalaust!

En ég viðurkenni þó að ég átti von á meiri sársauka, kona sem hefur
gengist undir tvennar deyfilausar fæðingar og rúmlega 30 spor í hvort
sinn, þolir nú alveg að 100+ hár séu rifin upp með rótum með einum
vaxstrimli. Þannig að ég hélt áfram, kláraði lappirnar og eina
rauðvínsflösku í leiðinni.

Þá fékk ég aðra brilljant hugmynd, ákvað að koma kallinum virkilega á
óvart og leyfa honum að kíkja á eina sköllótta, það myndi án efa leiða til
ýmissa skemmtilegra "æfinga". Þannig að ég athugaði með börnin, þau voru
enn sofandi, náði mér í aðra rauðvínsflösku, hitaði vaxrenning, setti
annan fótinn upp á klósettið og skellti renningnum í klofið..... og reif
af. Ó MÆ GOD!!! Ó JESÚS KRISTUR!!! ÉG SÉ EKKERT, ÉG ER BLIND, ÞVÍLÍKUR
SÁRSAUKI!!! Ég var blinduð af sársauka, sló niður hárblásarann og
rauðvínsflöskuna áður en ég náði andanum aftur. Ég hélt ég hefði gelt
sjálfa mig með því að rífa af mér hálfa píkuna! Ég þakkaði allavega fyrir
að miðað við sársaukann þá gat ekki verið eitt stingandi strá eftir.

Ég leit á vaxrenninginn. FUCK! FUCK, SHIT, FUCK! Hann. var. tómur. Ekki
eitt einasta hár á renningnum.... og ekki neitt vax heldur! HVAR VAR
VAXIÐ??? Ég leit hægt niður, hrædd við sjónina sem beið mín..... allt
vaxið af renningnum var í klofinu á mér. Ég leit til himins. WHY? Og
gjörsamlega miður tók fótinn niður af klósettinu! Mistök! ÞVÍLÍK MISTÖK!
Ég gjörsamlega heyrði píkuna og rasskinnarnar límast saman!

Ég gekk um baðherbergisgólfið algjörlega miður mín og hugsaði hvað til
bragðs skyldi taka. Hvernig get ég losnað við vaxið. Ég prófaði að toga
það af með puttunum. Ekki góð hugmynd. Ég yrði að láta það leysast upp,
bræða það á einhvern máta. Hvað bræðir vax? Mér varð litið á hárblásarann
en hvarf strax frá þeirri hugmynd þar sem mig langaði ekki til að útskýra
brunasárin á brunadeildinni niður á Borgarspítala. Vatn! Vatn bræðir vax.
Ég lét vatn renna í baðið, svo heitt að Saddam Hussein hefði kosið að nota
það til að pynda óvini sína, ég aftur á móti dró andann djúpt, gekkst
undir pyntingar sjálfviljug og settist í baðkarið.

Ég komst að nokkru sem ég hafði ekki vitað áður. Vatn bræðir ekki vax!
Neibb, 60 gráðu heitt vatn bræðir ekki vax, aftur á móti var ég nú límd
föst við baðbotninn! Heilinn fór í óverdræv, hvernig gat ég bjargað mér úr
þessari klípu? Eftir ýmsar tilraunir sem allar mislukkuðust, náði ég í
Lady rakvélina mína og ákvað að skafa vaxið af! Ef ykkur langar til að
vita hvernig það var legg ég til að þið rakið ykkur með ársgamalli vel
notaðri rakvél, notið ekki vatn né nokkurs konar sápu. Þá komist þið
nálægt því!

Ég var að reyna að skafa vaxið af þegar ég kom loksins auga á bjargvættinn
minn. Hallelújah, Praise the Lord. Það fylgdi nefnilega með í pakkanum
svona vax remover. Ég hafði bara ekki tekið eftir því fyrr. Ég flýtti mér
að ná í bómull, hella slatta í og nudda yfir vaxið. ÁÁÁÁÁÁÁÁÁÁÁ! Klofið á
mér brann! Það var eins og ég hefði hellt yfir það bensíni og kveikt í! En
mér var sama því helvítis draslið virkaði. Því þoldi ég sársauka sem
yfirgnæfði allan þann sársauka sem ég hafði upplifað við fæðingarnar og
gerði mig 150% tilbúna í 10 fæðingar í viðbót.

Þegar ég var búin að hreinsa allt vaxið af skoðaði ég djásnið. Þrátt fyrir
öll ósköpin hafði ekki. eitt. einasta. hár. horfið! Ekki. eitt. einasta!!!

Þegar maðurinn kom heim var ég búin að víggirða minn helming af 
rúminu.....  :)

hahaha.. fyndið en allavegana barnið ekki búið að láta sjá sig og mér líður bara ljómandi vel eins og er.  Þannig að ég kveð í bili


» 3 hafa sagt sína skoðun

09.05.2007 22:26:22 / Gauti

hohoh...

hæbb... sry,langt síðan síðast og jú margt hefur gerst.

ég er kominn með vinnu hjá daglegu brauði... við útkeyrslu og bakstur... svo ég hef e-ð að gera á daginn jey... ekki e-r atvinnulaus aumingi sem rotnar bra heima og fitna ég varð svo feitur að ég varð næstum 80 kíló hehe hey fattie bomm bomm... nei segji svona...

En hey einn ljóskubrandari...

Ljóskan var á rúntinum með systir sinni, þegar þær eru búnar að vera að keyra í smástund biður systirin ljóskuna um að stja aðra tónlist í græjurnar, og jú ljóskan gerir það hún byrjar á því að setja disk með creed og jú allt í lagi með það, en eftir smástund lítur systirin á ljóskuna og spyr hvað í #ndskotanu# ljóskan er að gera en þá er hún að reyna að troða öðrum disk í með Hinder og skilur ekkert í því afhverju hann vill ekki fara inn... Þá stynur ljóskan: Ég vildi bara fá blandaða tónist...

hahahahaha.... og gaman að segja frá því að þetta kom í alvörunni fyrir eina manneskju hér í bæ hahaha..............!!! og fyrir ljóskurnar sem eki skilja þá var hún að reyna að troða 2 diskum í því hún vildi fá blandaða tónlist hahahaha... WHAT A GOOFFIE... en nóg af þessari blessuðu ljósku...

nú eru einungis 34 dagar þar til ég skelli mér til tenerife ohhh.... hvað mér hlakkar til, mér hlakkar svo til að ég er valla að trúa því.....

en já þarf að fara að sofa er að fara að vakna kl. 05.59 þarf að mæta kl. 06.00


» 0 hafa sagt sína skoðun

23.04.2007 18:22:41 / Gauti

Frat

hahahahahahaha....

hey ég var í reykjavík í gær...

Eftir það varð ég alveg ær...

en amm ég fór til Reykjavíkur með Bibbu tótu og lenu...

það var svona ca. gaman hehe... amm sváfum 3 saman í litlu herbergi... ( ég lena og Bibba)

 

 

hehe... þetta var nú kannski ekki alveg svona hehe... þó ég viti ekki hvað þeim er að dreyma...

þetta er kannski ekki alveg góð lýsing á því hvernig þetta var... fannst þetta bra svo frábær mynd hehehehe... hey folks luv´yall

 


» 4 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2
Klukkan
�?žar til �?©g fer til TENERIFE
Niðurtalningu lokið!
Fyrir 1717 dögum
RSS tengill